|
|
28.08.2008 21:25:47 / bubba
Í júní síðastliðnum greindist
Þórhildur Nótt Mýrdal, dóttir Steinunnar Bjargar Gunnarsdóttur og Jóns
Gunnars Mýrdal með sjúkdóm er kallast Spinal Muscular Atrophy eða SMA
(vista) til eru 4 flokkar af þessum sjúkdóm og er Þórhildur með flokk 1
sem er jafnframt sá hættulegasti. Hún þarf á bæði lyfjagjöf og
sérfræðiþjónustu að halda svo ekki sé minnst á tækjabúnað. Þetta
kostar allt peninga og mikla umönnun beggja foreldra sem munu
væntanlega þurfa að vera töluvert frá vinnu. Viljum við því biðja alla sem eru aflögufærir að styrkja hana og fjölskyldu hennar með frjálsum fjárframlögum. Söfnunarreikningur Þórhildar er: 1118-05-250052 kt: 120856-7589 Munum svo að margt smátt gerir eitt stórt.Viljið þið vera svo væn að copy/paste þennan texta yfir á ykkar bloggsíðu svo að þetta berist sem flestum. Frekari upplýsingar um sjúkdóminn: http://www.fsma.ci.is/
»
02.05.2008 20:54:30 / bubba
Jaja verð nú að segja frá ferðalagi mínu til Danaveldis, því
það eru allir æstir í að heyra það
Ég, mamma, Davíð Logi og Gunnar Davíð skelltum okkur til Danmerkur 15. apríl,
byrjuðum auðvitað á því að fljúga út og tókum svo lest til Arhusar þar sem Bippi
frænds og fjölskylda biðu spennt eftir okkur ÞAr gistum við í fjórar nætur og
nutum þess að vera með þeim, skelltum okkur svona aðeins í búðir, en það var nú
ekkert rosalega mikið, misstum okkur bara smá í HM Bippi var örugglega
við það að henda okkur út, fyrir að plata Heiðrúnu svona . Vorum eins og prinsessur hjá þeim, það var alveg
séð um okkur og eldaði Bippin dýrindismat. Haldinn var afmælisveisla 18. apríl
því Gunnsinn átti 6 ára afmæli og fóru svo allir í sirkus nema ég og Davíð við
fórum í heimsókn til Kristínu Eddu og fjölskyldu, þau voru einmitt ný flutt í
mjög fína íbúð />
Á laugardeginum
skelltum við okkur svo til Odense þar sem ég átti heima þegar ég var lítil fórum
og kíktum á hverfið sem ég bjó í og skólann sem ég var í, ekkert smá skrítið að
koma þarna eftir öll þessi ár. Fórum líka í dýragarð sem var mjög flottur en fórum
ekki í eina einustu búð Á mánudeginum fórum við svo til Köben á hótel sem var
með lyftu, mjög sáttar með það því við vorum jú með tvær töskur og kerru, en
nei, það gleymdist að segja okkur að lyftan var á milli hæða, við þurftum sem sagt að drösla öllu upp tröppur til að komast í lyftuna og svo þegar við komum úr lyftunni þurftum við að drösla öllu upp aðrar tröppur: til að komast í herbergið^), hverjum dettur í hug að hafa þetta svona . En þar sem við mamma erum helmassaðar þá fórum við nú létt með þetta. Í Köben var kíkt aðeins í búðir fyrsta daginn og svo daginn eftir farið í Tívolí, sem Gunnar var nú aldeilis búinn að bíða spenntur eftir, hann beið reyndar alltaf eftir næsta sem við gerðum um leið og eitt var búið, var stundum að fara yfir um af spenning Við eyddum öllum deginum í Tívolíinu enda svaka stuð hjá okkur, Gunnar fór aftur og aftur í sum tækin og svo fékk systa nú að koma með í sumt, enda þykir henni nú ekki leiðinlegt að fara í einhver tæki, verst að hún hafði engan til að plata sig með í stóru tækinn Davíð fékk ekki að fara í nein tæki, náði aldrei hæðamörkunum en hann var mjög góður í kerrunni sinni og magapokanum . Daginn eftir fórum við heim en áttum ekki flug fyrr en um kvöldið þannig að við urðum að labba smá meira í búðir til að eyða tímanum Þegar við komum í flugstöðina vorum við orðnar nett þreyttar en áttum eftir að labba nokkrum sinnum fram og til baka alla helv... flugstöðina því það stóð alltaf vittlaust hvert við ættum að fara. En þetta tókst allt á endanum og við komumst út í flugvél alveg búnnar á því í löppunum, Davíð sofnaði fljótlega og vaknaði ekki fyrr en í Reykjavík. Heizlinn kom að ná okkur og vorum við rosalega ánægð að sjá hann, því við höfðum saknað hans rosalega mikið, eða allavega sum af okkur . Þetta var semsagt mjög skemmtileg ferð, verst hvað helv... gengið er hátt að maður tímdi ekki að versla mikið. Gunnar var ótrúlega duglegur að hjálpa okkur og Davíð var rosalega góður og þolinmóður. Við mamma teljum okkur líka miklar hetjur að ferðast svona einar með tvö börn og töskur, ætlum næst að taka karlmann með okkur til að sjá um töskurnar Takk Bippi, Heiðrún, Snorri og Hekla fyrir að leyfa okkur að vera hjá ykkur það var æðislega gaman að koma til ykkar
/>
»
01.04.2008 10:22:03 / bubba
Er þetta ekki svolítið mikið rugl????
Tveir dómar sama dag á sama landinu. Héraðsdómur Suðurlands hefur dæmt karlmann í eins árs fangelsi, þar af níu mánuði skilorðsbundna, fyrir hrottafengna árás og nauðgun gagnvart unnustu sinni. Þá var hann dæmdur til að greiða henni rúmar *sex hundruð þúsund *krónur í miskabætur. -- Hæstiréttur hefur dæmt Hannes Hólmstein Gissurarson til að greiða Auði Laxness, ekkju Halldórs Laxness, *eina milljón og fimm* *hundruð þúsund* í fébætur fyrir brot á höfundarrétti í fyrsta bindi af ævisögu Halldórs. Þá er Hannes Hólmsteinn dæmdur til að greiða 1,6 milljónir í málskostnað. Hvor konan ætli hafi þjáðst meira, andlega og líkamlega?
»
12.03.2008 10:25:52 / bubba
Nenni ekki að fara að læra, þess vegna ætla ég að gera smá færslu  Var í skólanum í gær og fyrradag, tók snúllan með á mánudag og hann var svo góður að sofa bara nánast allan tímann, svo í gær fékk hann að vera hjá Sossu frænku, átti nú að sofa í vagninum á meðan en hann vildi frekar spjalla við frænku sína  Gott að heyra að ég er ekki eina sem á við þetta hreingerningarvandamál, en ég er að reyna að slappa bara af í þessu, það kemur hvort eð er alltaf aftur drasl. Þegar ég ætla að fara að sofa á kvöldin þá þarf ég yfirleitt að liggja í svona klukkutíma áður en ég sofna, allavega svona þessa dagana, þá fer ég alltaf að spá í ýmsu, hvað ég gerði um daginn og hvað ég ætla að gera daginn eftir og svona alskonar. Áður en ég sofna þá hugsa ég samt ansi oft um það hvað ég er heppin manneskja og ég er alltaf að sjá það meir og meir hvað ég er heppin. Ég á ÆÐISLEGAN mann og YNDISLEGAN son sem gæti ekki verið betri. Fjölskyldan mín er frábær og hefur alltaf hjálpað mér mikið, meir en þau vita og ég veit að þau myndu gera allt fyrir mig, enda myndi ég gera allt fyrir þau  Ég hef semsagt ekki yfir neinu að kvarta, en ég veit líka að einn daginn gæti ég hætt að vera svona heppinn og þess vegna vil ég njóta þess eins vel og ég get meðan heppnin er með mér  Það eru t.d. fjölskyldur núna hér á Skaganum sem eiga rosalega erfitt vegna slys sem varð hér, ég þekkti ekki þessa stráka en vá hvað ég hugsa samt oft til þeirra og fjölskyldu þeirra, það er ekki hægt að ýminda sér hvað það er sárt að missa afa eða ömmubarn sitt, son sinn, bróður eða vin það er örugglega eitt það hræðilegasta sem maður lendir í. Ég samhryggist þessu fólki alveg rosalega mikið og vona að það fái styrk til að komast í gegnum þetta.
»
23.02.2008 23:55:11 / bubba
Tími kominn að taka út jólalúkkið og kannski skrifa eina færslu í leiðinni. Búið að kjósa júróvision lagið sem fer fyrir Íslands hönd og er það bara mjög flott lag og gæti bara gert góða hluti  Fór í bæinn í dag á enjo fund það var verið að kynna nýja líkamslínu sem er að koma hjá þeim og líst mér mjög vel á hana, fékk eintak af þessu öllu þannig að nú verður maður bara að reyna að muna að smyrsla sig og sjá hvernig þetta virkar. Tók lilla manninn með mér og hann svaf bara svo fínt á meðan, lét reyndar kellurnar aðeins dást að sér fyrst  , hann er svo yndislegur  Veðrið sem betur fer aðeins að skána maður hefur ekki getað farið út að labba nánast allt árið, var byrjuð að fara í þrek bara til að fá einhverja hreyfingu. En nú helst vonandi þetta góða veður svo maður geti verið bara á röltinu með snúllann  Ég hélt svo að ég myndi hafa svo mikinn frítíma þegar ég færi í fæðingarorlof, en vá hvað maður getur alltaf fundið sér nóg að gera meðan Davíð sefur, er ekki búinn að ná að gera helminginn sem ég ætlaði að vera búinn að gera. Tók líka eitt fag í skólanum þannig að maður dundar sér að læra og svo er ég reyndar ofvirk að sansa eitthvað hérna heima, samt finnst mér alltaf vera drasl hér. Er samt oft að hugsa hvernig var eiginlega heimilið mitt þegar ég var í þremur vinnum og skóla????? Svo er svo finndið maður leggst upp í rúm á kvöldin og er að pirra sig yfir því sem maður náði ekki að gera og fer að hugsa að maður hefði átt að geta nýtt tíman betur, í staðinn fyrir að vera bara ánægður með það sem maður gerði og njóta þess. Hvaða máli skiptir það þó það sé smá óhreinn þvottur eða drasl í einhverjum skáp, það verður þar ennþá daginn eftir. Ég er allavega alltaf að standa mig að þessu en er alltaf að reyna að breyta þessari hugsun og vera bara glöð  .
»
13.01.2008 16:16:30 / bubba
Á maður ekki bara að blogga smá, taka smá pásu í tiltektinni, eða nota það sem afsökun til að taka sér pásu Ég er svona byrjuð að gera smá hérna heima, maður fer bara hægt og rólega af stað. Nenni nú ekki að sitja bara á rassinum. Það gengur líka allt svo vel, skurðurinn virðist gróa vel og ég er hress þannig að það er um að gera að nýta það og gera eitthvað. Annars er kallinn minn bara helv.. duglegur að hjálpa til og er aldeilis búinn að dekra við mig seinustu vikurnar, ég er bara ofsalega heppinn með þessa elsku hann er svo yndilsegur. Hinn drengurinn minn er nú ekki síðri hann er algjört æði er svo góður, langar reyndar ansi oft að það sé komin dagur klukkan 5 á morgnanna, mamman er nú ekki alveg sammála því, hefur nú aldrei talist mikil morgunmanneskja en litli snáðinn ræður þessu víst, allavega ennþá Já svo er Davíð Logi kominn með síðu, maður varð nú að vera almennilegur foreldri og hafa síðu handa barninu En við vorum svo heppinn að hann Bippi frændi er algjör tölvusnillingur, þannig að hann gaf okkur síðu sem hann bjó til. Hún er held ég bara ein sú flottasta í bransanum, allavega erum við rosalega sátt með hana slóðin er heidarsson.com. Ef ykkur vantar að láta búa til síðu fyrir ykkur þá getur hann reddað því, endilega hafið bara samband Já kallinn pabbi á víst afmæli í dag, til hamingju með það Vorum einmitt í mat hjá honum í gær og fengum þetta fína læri, hann klikkar nú aldrei í matseldinni Það er svo líka búið að bjóða okkur í mat í kvöld þannig að við sleppum alveg við matseld þessa helgina Skólinn er svo að byrja á morgun, skráði mig í tvö fög en veit ekki hvort ég get tekið þau bæði, á nefnilega að mæta svo mikið í skólann þessa vikuna því það er fyrsta staðlota og það gengur ekki alveg upp þegar maður er með svona lítinn snáða. Vonast samt til að geta allavega tekið annað fagið. En jaja það er víst best að halda aðeins áfram áður en Davíð Logi vaknar
»
03.01.2008 00:03:38 / bubba
»
11.12.2007 16:48:25 / bubba
Jaja þá er komið 11.des, dagurinn sem ég hélt að kæmi aldrei eða mér fannst hann alltaf svo langt í burtu. En þetta er víst dagurinn sem spáður var að krílið kæmi í heiminn En það er nú ekkert að drífa sig allavega allt rólegt ennþá, enda bjóst ég nú ekki við að það kæmi á settum degi. Ég er enn bara hress og er bara að dunda mér þessa dagana, taka til í skápum og pakka inn jólagjöfum og svona skemmtilegt. Veit samt stundum ekki alveg hvernig ég á að vera því ég þarf ekki að mæta í vinnu og ekki að vera með samviskubit að vera ekki að læra, veit ekki hvenar það skeði seinast. En þetta venst örugglega, svosem alltaf nóg sem maður getur fundið sér að gera. Annars er bara spenningur og eftirvænting eftir krílinu og allir alltaf að tékka á manni, maður má ekki missa af símtali þá verður allt vittlaust því fólk heldur að maður sé komin á fæðingardeildina hehe Fór í skoðun í dag og allt var í gúddí nema ég er komin með tröllaputta og fætur, lítið kvennlegt við þá parta hjá mér fer svo í mónitor á föstudag ef ég verð ekki búinn að eiga. Ætli maður verði ekki bara á aðfangadag að rembast En jaja ætla að halda áfram að dunda mér og bíða eftir krílinu mínu
»
03.12.2007 21:53:39 / bubba
Maður er bara orðinn öflugur í blogginu , held reyndar að það sé bara því ég á að vera að læra en svosem allt í lagi að taka sér smá pásu Fyrsta prófið á morgun, er svona að verða nett stressuð, er búinn að vera svo róleg. Er að fara í aðferðarfræði próf og hélt að það væri mest stærðfræði sem mér fannst mikill léttir en svo komst ég að því að það er aðeins 50% af prófinu stærðfræði og það finnst öllum nema mér vera léttir. Ég vil frekar reikna en að muna hvað einhver hugtök þýða. Síðan er næsta próf á föstudaginn og ég á eftir að lesa allt námsefnið nánast fyrir það, maður er ekki alveg búinn að vera að standa sig þessa önn Merkilegt samt þegar kemur að prófum hjá mér að þá langar mér alltaf að fara að þrífa í dag er ég t.d. búinn að ryksuga alla íbúðina og skúra hluta af henni og taka smá til ( var reyndar óvenju lengi að þessu, þar sem maður er ekkert rosalega léttur á sér ) en sem betur fer er jólaskrautið enn niðri í geymslu annars hefði ég ekkert lært í dag. Ég var nú samt dugleg að læra í dag var byrjuð klukkan 9 í morgun og er búinn að sitja yfir þessu alveg nema rétt meðan ég var að þrífa. Svo er ég búinn að finna mér fullt af verkefnum ef ég geng framyfir, taka til í ýmsum skápum og svona, hlít að koma mér af stað við það Annað merkilegt við það að þegar ég er í prófum þá eru verktakarnir líka ofsalega duglegir að vinna og vera með læti, þegar prófin voru í maí þá voru þeir að lakka geymslurnar og lyktin kom öll upp í íbúð og ég var í vímu að reyna að læra. Síðan hefur nánast ekki sést til þeirra fyrr en fyrir nokkrum dögum þegar ég byrjaði að læra fyrir jólaprófin. Núna eru þeir búnnir að vera að bora seinustu daga og að koma inn í íbúðina og klára það sem var eftir  mér hefur alveg langað til að fara nokkrum sinnum út og skalla þá En já svo er ég bara komin í jólafrí á föstudaginn og í fyrsta skiptið í langan tíma þá er ég að fara í JÓLAFRÍ ekki að fara að vinna og ég ætla svo að njóta þess. Gunnsi verður líka ofsalega glaður þegar það kemur föstudagur eða poppdagur eins og hann kallar föstudagana því þá fær hann systur sína aftur, honum finnst ég ekkert skemmtileg meðan ég er í þessum skóla og get ekkert gert með honum Vonandi nær maður eitthvað aðeins að sinna honum áður en krílið kemur Úff já það er orðið SVO stutt í það en við erum alveg farinn að bíða eftir því með miklum spenningi jaja nú er held ég málið að lesa einu sinni enn yfir glósurnar horfa svo á einn grays og koma sér svo í háttinn. Endilega verið svona dugleg að commenta eins og við hina færsluna, gleður mitt litla hjarta að lesa það milli lærdóms
»
26.11.2007 09:31:11 / bubba
jaja klukkan um níu og ég löngu vöknuð þó ég sé í fríi, ætlaði svo að sofa út í morgun en auðvitað gekk það ekki, stefni samt að því að leggja mig á eftir nenni ekki að vera þreytt í allan dag. Var að hugsa um það um daginn hvað mér hlakkar til að geta sofið alla nóttina, en komst svo að því að það er ansi langt í það þannig að ég hætti að hugsa um það. Þið sem getið enn sofið alla nóttina, NJÓTIÐ ÞESS MEÐAN ÞIÐ GETIÐ. Annars er allt gott að frétta og öllum heilsast held ég bara vel, bumbubúinn æfir fimleika, fótbolta og einnig box mjög reglulega , annars er orðið rusalega stutt í komu hans í þennan heim og ég sem á eftir að gera SVO mikið. Reyndar er nánast allt tilbúið fyrir bumbubúann en ég á eftir allt of mikið fyrir skólann. Skilaði nú af mér tveim verkefnum í seinustu viku og stefni í að klára rest í þessari viku. Ótrúlegt hvað maður er samt aldrei ánægður með það sem maður gerir heldur tuðar yfir því hvað maður gerir ekki, eða sko það sem ég meina er að ég t.d. ætla mér alltaf að gera allt á einum degi en þar sem ég hef ekki enn fundið supermann búningin þá hefur það ekki tekist ennþá , en samt sem áður geri ég kannski helling, eða gerði maður kemst víst ekki yfir mikið ennþá en samt er ég alltaf að pirra mig yfir því sem ég gerði ekki, í stað þess að vera bara ánægð og glöð með það sem ég gerði en svona er þetta bara. Svo ætla ég að þrífa og skreyta svona milli þess sem ég læri fyrir prófin, úff það er svo stutt í þau. Ég er kominn í nett jólaskap búinn að baka smá, við maría tókum nú aldeilis sörubakstur, vorum að spá í að stofna bakarí þetta var svo mikil framleiðsla hjá okkur einnig erum við mútta búnnar að skella í nokkrar kökur. Fórum í bæjin í gær og kíktum aðeins í kringluna og vá ég var orðin rugluð eftir klukkutíma, feginn að ég sé nánast búinn með jólagjafir. Annars ákvað ég áðan að taka smá bloggrúnt á bloggsíðurnar sem ég er með inni hjá mér og ég komst að því að margir af þeim bloggurum eru bara horfnir og sumum hefur ekkert spurst til í ár eða meir, held ég verði að fara að uppæra þessa síðu hjá mér En jaja er að spá í að fara að hlusta á jól.is og reyna að læra aðeins og leggja mig svo p.s. ætla að setja inn nýja könnun
»
10.11.2007 22:26:00 / bubba
Halló halló er ekki bara sniðugt að koma með eitt stykki blogg, veit nu ekki samt hvort það verði eitthvað spennandi en kannski nennir einhver að lesa það Bara rétt um mánuður í krílið, vá hvað þetta er búið að líða fljótt og ég á eftir að gera svo mikið áður en það kemur. Byrjaði að þvo smá af fötum í dag, þannig að ömmurnar geta byrjað að róast þær voru farnar að hafa miklar áhyggjur af þessu, Abba amma ætlar svo að koma á morgun og hjálpa til við að strauja og svona. Finndið samt hvað allir segja við mann ,, vá hvað þú ert orðin myndarleg" var ég svona ljót eða??? Ég er hætt að vinna í EÓ seinasti dagurinn í gær og það er ekkert smá skrítið, veit hvernig ellismellum líður núna þegar þeir þurfa að hætta að vinna, samt veit ég að ég á alveg eftir að fara að vinna aftur en það er bara langt þanngað til og mér finnst ég hálfgerður aumingji eða eitthvað að vera ekki að vinna, en það er auðvitað eðlilegt að ég sé ekki að vinna lengur og maður venst þessu. Ég á svosem eftir að gera nóg næstu mánuðinn, þreif allt í dag og svo verður skólinn settur í forgang á morgun, eða kannski bara á manudag. Það er víst nóg sem ég á eftir að gera þar, nánast eftir að læra fyrir heila önn þar sem ég hef lítið sinnt þessu. Svo koma próf og þarf ég að taka þau í bænum, þannig að vonandi verður maður ekki kominn með hríðir eða eitthvað Svo ætla ég að sofa þegar mér langar til og get hehe hef ekki sofið mikið að undanförnu þannig að maður þarf að safna upp orku. Svo fer maður að klára þær kynningar sem eftir eru og svo kemur frí í því líka. Annars langar mér að fara að baka, ætla að baka með múttu og við byrjum örugglega í þessari viku á því, svo erum við maría að spá í að leggja í söru bakstur mmm þær eru svo góðar. Svo eru nokkrar jólagjafir eftir samt ekki margar náðum að kaupa helling seinustu helgi þegar við fórum í bæjin, skelltum okkur í verslunarferð og fórum svo á hótel og að borða geggjað næs jaja nóg um blaður hjá mér hvað ég ætla og langar að gera ekkert spennandi við það, eða jú það er ofsalega spennó en jaja ef einhverjum leiðist næstu vikurnar þá má sá hin sami bjalla á mig og trufla mig smá stund við lærdóm og gera eitthvað með mér
»
20.10.2007 14:55:11 / bubba
jaja gott fólk nú er helgi og ég sit og reyni að læra, er alltaf að reyna að vera dugleg en gengur illa. Er mikið að spá núna að hætta í einu fagi er í þrem áföngum og tveir eru mjög stórir og ég er ekki að sjá fram á það að geta klárað þá alla. Langar heldur ekki að rétt meika þetta vil gera þetta almennilega, þannig að hugsun dagsins og seinustu daga er að hætta í táknmáli og taka það seinna með trompi, en samt meika ég ekki að hætta í fagi. Ég næ samt aldrei að gera öll þessi verkefni og að læra undir lokapróf ásamt því að vinna og fara að skjóta út barni (því þetta mun auðvitað bara skjótast út eins og ekkert sé ). Var líka að komast að því að ég þarf að taka próf í öllum áföngunum í des en það átti ekki að vera þannig og ég á að fara í próf 4 og 7 des, allavega veit ekki um eitt prófið, þannig að þetta er nokkuð tæft og ég veit ekki einu sinni hvort að ég fái að taka þau hérna á skaganum, nenni ekki að keyra í bæjin alveg á steypinum eða með hríðir eða eitthvað . Veit semsagt ekkert hvað ég á að gera en veit að ég fæ ekki aukadaga eða aukaorku jaja en nóg um þessar pælingar mínar. Fyrir utan þetta er allt gott að frétta, erum aðeins farinn að vesenast að gera tilbúið fyrir krílið, erum alltaf að sansa eitthvað smá hérna heima og svo er maður að skoða hvað vantar og fá lánað hingað og þanngað, ætlum að kaupa vagn og ég ætla að skoða það í vikunni er að fara í bæjin í staðlotu í skólanum og ætla að nota tímann í að versla það sem vantar. Erum búinn að búa hérna í 6 mánuði og LOKSINS ákváðu þessir helv.... verktakar að klára íbúðina okkar, eða réttara sagt að skipta um það sem þeir skemmdu. Hefðu alveg mátt koma fyrir 6 mánuðum ekki gaman að fá þá aftur þegar maður er búinn að vera svona lengi hér. En þetta tekur víst sinn rosalega langa tíma hjá þeim, ekki menn sem ég myndi allavega fá til að byggja fyrir mig. 9 vikur í jól, bara svona ef þið viljið byrja á að stressa ykkur fyrir það, ég er byrjuð að kaupa jólagjafir, hef alltaf ætlað að vera snemma í því en aldrei náð því. Núna neyðist ég nottla í það þar sem ég hef ekki tíma í des til að gera allt. Hlakkar líka svo til að fara að baka fyrir jólin ætla að byrja bara á því í nóv. en jaja allir löngu hættir að nenna að lesa ég er bara að bulla eitthvað nenni ekki að fara að taka til, en verð víst að drífa í því, þrífa drulluna upp eftir verktakana erum að fá fólk í mat í kvöld og það er svona leiðinlegra að hafa allt í drasli
»
13.09.2007 15:11:10 / bubba
Ekki nema nokkrir dagar síðan maður bloggaði og maður er kominn með nýja færslu Hef svosem ekkert merkilegt að segja núna frekar en seinast Er loksins að ná að byrja að læra, er ekki að vinna í dag þannig að maður er búinn að læra í allan dag, þurfti nú að byrja á því að læra á þetta WebCT hef aldrei áður þurft að nota þetta, en þetta er allt að koma er allavega búinn að finna hvar umræðurnar eru og verkefnin . Sá einmitt að ég á að skila verkefni á morgun sem ég þarf að vera búinn að horfa á þátt sem textaður (táknmál) og hafa ekkert hljóð á og svo að horfa á þátt án þess að hann sé textaður eða með hljóði og skrifa um hvernig það er, þannig að það er víst eitthvað sem ég þarf að gera í kvöld, spurning hvernig restin af heimilisfólkinu fýlar það Fór í skoðun í morgun og það er bara allt í góðu með bumbubúann, mér vantar hins vegar svolítið blóð, það virðist minka í hvert skipti hjá mér og því þarf ég alltaf að fara reglulega í blóðprufu, ótrulegt kvarta yfir að það sé ekki nóg blóð en dæla því samt úr mér . En nú á ég líka að fara að taka stærri skamt af járni þannig að þetta lagast vonandi, vona líka að þetta sé ástæðan fyrir síðþreytunni í mér, er farinn að leggja mig alltaf í hádeginu eins og gömlu kallarnir fer reyndar allt of seint að sofa á kvöldin en er að vinna í því að laga það Ég var að passa fjóra gríslinga um daginn, eða eiginlega bara þrjá sá elsti var meira að hjálpa mér. Þá fór ég að spá ok það er ekkert mál að eiga svona mörg börn því þau voru svo þæg, en svo fór ég að spá að eiga fjóra krakka og að sjá um heimili það væri örugglega ekki hægt. Svo eru krakkarnir kannski ekki alltaf svona þægir og þvotturinn sem er af öllu þessu er örugglega rosalegur fyrir utan allt sem tengist heimilisþrifum, elda mat og svona. Að mínu mati er þetta meira en 100% vinna og ég held að ég gæti þetta aldrei, ég á ekki enn barn en mér tekst ekki að hafa allt hreint hjá mér og ég nenni ekki að elda mat á hverju kvöldi, hvernig verður þetta þegar maður er kominn með krakka sem þýðir meiri þvottur og minni tími????, verð reyndar ekki að vinna þá, en það er bara fyrstu mánuðina svo þarf maður að geta þetta allt . Ég verð bara að enda þessa pælingu mína á því að segja að hún Dísa yndislega er bara greinilega algjör super women því hún á fjóra krakka sem allir eru yndislegir og ótrúlega vel upp alinn börn og samt er alltaf hreint hjá henni, mér finnst þetta aðdáunarvert að geta þetta Þú ert snillingur Dísa En jaja best að halda áfram að læra
»
05.09.2007 20:43:57 / bubba
»
10.08.2007 23:45:03 / bubba
Sumarið er tíminn, en kannski ekki tíminn á blogg, ég hef lítið
sem ekkert verið í tölvunni í sumar en maður fer að þurfa að sitja
yfir henni aftur þegar skólinn byrjar. Held ég sé að fara að byrja
27. ágúst og mér er farið að hlakka svo til .
Ég er búinn að vera að veiða á fullu með Heizlanum mínum er
búinn að fara á Arnarvatnsheiði, Veiðivötn og fleiri staði og
auðvitað náði ég að veiða stærsta fiskinn í Veiðivötnum Eigum svo
örugglega eftir að fara eitthvað smá meira í sumar.
Bumbubúinn ákvað allt í einu að fara að stækka við sig og því
hefur mallinn blásið út seinustu vikur og svo er hann eins og
pabbinn segjir farinn að æfa fótboltaspörkin það eru allavega
góðar hreyfingar á krílinu
Sibban að fara að flytja til okkar og vera hjá okkur meðan
skólinn er, sem þýðir að ég þarf að fara að tæma auka herbergið,
sem hefur verið vinnsæll staður undir drasl Geri það kannski um
helgina ef maður nennir annars er svo mikið að gera hjá mér
þennan mánuð er nottla að vinna í Einarsbúð allan daginn og svo er
búið að vera brjálað að gera í kynningum hjá mér á kvöldin þannig
að það er lítill frítími.
Sædís skvísa er líka búinn að vera hjá okkur seinustu viku og
verður þar til skólinn hennar byrjar, fær að vera hjá ömmu sinni
meðan við erum að vinna en svo reynum við að gera eitthvað
skemmtilegt saman um helgar
En nú er það spurningin um að skella sér í heitt og gott bað eða
kannski að þrífa smá hérna heima því það skeður víst ekki meðan við
erum ekki heima
»
Síður: 1 2 3 ... 10
|
Heimsóknir
Í dag: 1 Alls: 47977
|